Mount Everest er stærsta fjall í heiminum, toppurinn á jörðinni og er 8848 metrar yfir sjávarmáli eða 29029 fet. Tæknilega séð er ekki mögulegt að nokkurt annað fjall geti risið hærra upp en Mount Everest því að það er nú þegar byrjað að síga niður vegna síns eigin þunga.
29. maí árið 1953 náðu fyrstu manneskjurnar á toppinn á Everest. Voru það Edmund Hillary og Tenzing Norgay sem náðu þessu afreki. Þeir byrjuðu að klífa í mars. Eftir að þeir höfðu komist upp og sannað að það væri hægt byrjuðu margir að reyna, voru ekki margir sem komust alla leið heldur enduðu í stórslysum.